1 00:00:04,305 --> 00:00:08,191 Þetta er önnur heimsókn mín til Íslands, 2 00:00:09,083 --> 00:00:16,169 í fyrra skiptið var ég nemandi, fyrir 59 árum, og stoppaði hér á leið minni til Bandaríkjanna. 3 00:00:17,061 --> 00:00:22,618 Mér þykir leitt að hafa ekki haft meiri tíma þá, 4 00:00:22,849 --> 00:00:28,607 en nú hef ég viku sem ég mun njóta með athyglisverðu fólki. 5 00:00:29,222 --> 00:00:38,537 Sérsvið mitt er á sviði orku og því kom ég til að kynna mér hvað fólkið hér er að gera í þeim efnum, 6 00:00:38,722 --> 00:00:42,634 með þær auðlindir sem hér eru t.d. jarðvarma 7 00:00:42,864 --> 00:00:56,880 Og merkilegt að nota orkuna og forðast þannig þær hættur sem fylgja því að nota olíu og gas. 8 00:00:57,757 --> 00:01:04,679 Ég lít út um gluggan hérna og sé hundruðir bíla, strætivagna og flutningabíla 9 00:01:04,925 --> 00:01:12,726 sem munu stöðvast nánast samstundis ef innflutningur eldsneytis legðist af. 10 00:01:13,172 --> 00:01:18,444 Sem er sérstaklega athyglisvert, því innflutningur mun stöðvast. 11 00:01:19,013 --> 00:01:32,280 Olíuvinnsla náði hámarki 2006, nú er notast við torsóttari olíulindir, sanda og á hafsbotni. 12 00:01:32,464 --> 00:01:38,145 Þær munu endast í 30 til 40 ár, og þá verðum við að hverfa aftur að svæðisbundinni orku. 13 00:01:38,283 --> 00:01:45,229 Sem er áhugavert fyrir Ísland, þið hafið rafmagn og orku til húshitunar, 14 00:01:45,229 --> 00:01:47,122 en hvað með samgöngur og flutninga? 15 00:01:47,122 --> 00:01:52,864 Því eru mögulegar olíulindir sem hugsanlega eru í norðuhöfum svo mikilvægar. 16 00:01:53,311 --> 00:01:57,711 Og skoða samband ykkar við önnur lönd. 17 00:02:00,648 --> 00:02:07,810 Hrunið sem skall á 2008 var mjög erfitt, og vondandi skilaði það einhverri reynslu. 18 00:02:07,887 --> 00:02:09,757 Því við vitum að það mun gerast aftur. 19 00:02:09,834 --> 00:02:17,922 Allar forsendur hrunsins 2008 eru meiri og sterkari nú en þá. 20 00:02:18,552 --> 00:02:25,054 En auðlindir og aðstaða stjórnvalda til að bregðast við eru veikari því skuldastaðan er verri. 21 00:02:25,054 --> 00:02:32,691 Með sama öryggi og við getum sagt að það muni gjósa á Íslandi, 22 00:02:32,782 --> 00:02:35,327 þó við getum ekki tímasett það nákvæmlega, 23 00:02:35,466 --> 00:02:39,921 getum við staðhæft að það verði annð hrun. 24 00:02:40,029 --> 00:02:44,534 Og, frekar fjlótlega, örugglega fyrir 2020. 25 00:02:44,765 --> 00:02:47,453 Svo, hvað getum við gert? 26 00:02:47,623 --> 00:02:56,166 Ég mun tala um stefnubreytinguna frá því að sækjast eftir sjálfbærni yfir í sveigjanleika og þrautseigju. 27 00:02:56,166 --> 00:03:00,037 Byggja samfélög þannig að þau geti tekið áföllum 28 00:03:00,160 --> 00:03:07,220 en haldið virkni og rekstri – með sæmilega friðsælum hætti. 29 00:03:07,297 --> 00:03:10,499 Ísland hefur marga spennandi möguleika á þessu sviði. 30 00:03:10,499 --> 00:03:18,703 Sem þið getið nýtt ykkur, en þá þurfið þið að hætta að hugsa um tíunda áratug síðustu aldar. 31 00:03:19,041 --> 00:03:25,080 Það var ágætur tími og skemmtilegur fyrir marga, en kemur ekki aftur. 32 00:03:25,265 --> 00:03:30,268 Nú erum við á leið í tímbil án vaxtar og jafnvel hjöðnunar. 33 00:03:30,945 --> 00:03:34,562 Og samfélög verða að reiða sig á eigin auðlindir og getu. 34 00:03:35,101 --> 00:03:42,199 Mikilvægt er að hafa það í huga að Ísland ber meiri umhyggju fyrir sjálfu sér en nokkur annar. 35 00:03:43,198 --> 00:03:49,854 Staða landsins er mjög sérstök, ekki síst þegar siglingaleiðir opnast í norðurhöfum. 36 00:03:50,700 --> 00:03:57,298 En þeir sem sækjast eftir höfnum ykkar og aðstöðu hafa engan áhuga á afkomu ykkar, fólksins í landinu. 37 00:03:57,298 --> 00:04:02,032 Þeir ásælast hagstæða stöðu landsins og auðlindum þess. 38 00:04:03,647 --> 00:04:09,598 Svo ef þið viljið eiga þokkalega framtíð, er það eitthvað sem þið verðið að gera sjálf. 39 00:04:09,598 --> 00:04:13,598 Það mun enginn gera það fyrir ykkur og þess er ekki að vænta frá öðrum, 40 00:04:13,598 --> 00:04:20,731 eða farsæld sé sjálfkrafa afleiðing þess stjórnmála- eða hagkerfis sem við búum við. 41 00:04:21,653 --> 00:04:23,765 Þið hafið heilmikið af auðlindum og gæðum til þess. 42 00:04:23,765 --> 00:04:28,949 Staða landsins verður mikilvægari með tímanum. 43 00:04:28,979 --> 00:04:35,027 Og vonandi getið þið notað aðstæðurnar til hagsbóta fyrir þjóðina. 44 00:04:37,057 --> 00:04:39,302 Ég er hér fyrst og fremst til að læra. 45 00:04:39,409 --> 00:04:49,576 Og mér finnst athyglisvert hvernig unnið er með orku og matvælaöryggi. 46 00:04:50,607 --> 00:04:57,999 Engu að síður standið þið frammi fyrir vali milli skammtímagróða eða 47 00:04:57,999 --> 00:05:02,889 uppbyggingar sem skilar stöðugu samfélgi sem getur brugðist við áföllum til lengri tíma. 48 00:05:03,197 --> 00:05:08,216 Þeir sem vilja græða í dag þrýsta alltaf á um skammtímalausnir. 49 00:05:08,894 --> 00:05:12,192 Þeir sem hinsvegar vilja sjálfir og að börn þeirra 50 00:05:12,192 --> 00:05:16,224 og afkomendur geti lifað sómasamlegu lífi áfram í landinu um ókomna tíð, 51 00:05:16,332 --> 00:05:22,175 leita þeirra leiða sem eru öruggari betur til þess fallnar að viðhalda stöðugleika. 52 00:05:22,498 --> 00:05:24,995 Og það er von mín að þið veljið þá leið.