0:00:04.305,0:00:08.191 Þetta er önnur heimsókn mín til Íslands, 0:00:09.083,0:00:16.169 í fyrra skiptið var ég nemandi, fyrir 59 árum, [br]og stoppaði hér á leið minni til Bandaríkjanna. 0:00:17.061,0:00:22.618 Mér þykir leitt að hafa ekki haft meiri tíma þá, 0:00:22.849,0:00:28.607 en nú hef ég viku [br]sem ég mun njóta með athyglisverðu fólki. 0:00:29.222,0:00:38.537 Sérsvið mitt er á sviði orku og því kom ég til að kynna mér hvað fólkið hér er að gera í þeim efnum, 0:00:38.722,0:00:42.634 með þær auðlindir sem hér eru t.d. jarðvarma 0:00:42.864,0:00:56.880 Og merkilegt að nota orkuna og forðast þannig þær hættur sem fylgja því að nota olíu og gas. 0:00:57.757,0:01:04.679 Ég lít út um gluggan hérna og sé hundruðir bíla, strætivagna og flutningabíla 0:01:04.925,0:01:12.726 sem munu stöðvast nánast samstundis ef innflutningur eldsneytis legðist af. 0:01:13.172,0:01:18.444 Sem er sérstaklega athyglisvert, því innflutningur mun stöðvast. 0:01:19.013,0:01:32.280 Olíuvinnsla náði hámarki 2006, nú er notast við torsóttari olíulindir, sanda og á hafsbotni. 0:01:32.464,0:01:38.145 Þær munu endast í 30 til 40 ár, og þá verðum við að hverfa aftur að svæðisbundinni orku. 0:01:38.283,0:01:45.229 Sem er áhugavert fyrir Ísland, þið hafið rafmagn og orku til húshitunar, 0:01:45.229,0:01:47.122 en hvað með samgöngur og flutninga? 0:01:47.122,0:01:52.864 Því eru mögulegar olíulindir sem hugsanlega eru í norðuhöfum svo mikilvægar. 0:01:53.311,0:01:57.711 Og skoða samband ykkar við önnur lönd. 0:02:00.648,0:02:07.810 Hrunið sem skall á 2008 var mjög erfitt, [br]og vondandi skilaði það einhverri reynslu. 0:02:07.887,0:02:09.757 Því við vitum að það mun gerast aftur. 0:02:09.834,0:02:17.922 Allar forsendur hrunsins 2008 [br]eru meiri og sterkari nú en þá. 0:02:18.552,0:02:25.054 En auðlindir og aðstaða stjórnvalda til að bregðast við eru veikari því skuldastaðan er verri. 0:02:25.054,0:02:32.691 Með sama öryggi og við getum sagt að það muni gjósa á Íslandi, 0:02:32.782,0:02:35.327 þó við getum ekki tímasett það nákvæmlega, 0:02:35.466,0:02:39.921 getum við staðhæft að það verði annð hrun. 0:02:40.029,0:02:44.534 Og, frekar fjlótlega, örugglega fyrir 2020. 0:02:44.765,0:02:47.453 Svo, hvað getum við gert? 0:02:47.623,0:02:56.166 Ég mun tala um stefnubreytinguna frá því að sækjast eftir sjálfbærni yfir í sveigjanleika og þrautseigju. 0:02:56.166,0:03:00.037 Byggja samfélög þannig að þau geti tekið áföllum 0:03:00.160,0:03:07.220 en haldið virkni og rekstri[br]– með sæmilega friðsælum hætti. 0:03:07.297,0:03:10.499 Ísland hefur marga spennandi möguleika á þessu sviði. 0:03:10.499,0:03:18.703 Sem þið getið nýtt ykkur, en þá þurfið þið að hætta að hugsa um tíunda áratug síðustu aldar. 0:03:19.041,0:03:25.080 Það var ágætur tími og skemmtilegur fyrir marga, [br]en kemur ekki aftur. 0:03:25.265,0:03:30.268 Nú erum við á leið í tímbil án vaxtar og jafnvel hjöðnunar. 0:03:30.945,0:03:34.562 Og samfélög verða að reiða sig á eigin auðlindir og getu. 0:03:35.101,0:03:42.199 Mikilvægt er að hafa það í huga að Ísland ber meiri umhyggju fyrir sjálfu sér en nokkur annar. 0:03:43.198,0:03:49.854 Staða landsins er mjög sérstök, ekki síst þegar siglingaleiðir opnast í norðurhöfum. 0:03:50.700,0:03:57.298 En þeir sem sækjast eftir höfnum ykkar og aðstöðu hafa engan áhuga á afkomu ykkar, fólksins í landinu. 0:03:57.298,0:04:02.032 Þeir ásælast hagstæða stöðu landsins og auðlindum þess. 0:04:03.647,0:04:09.598 Svo ef þið viljið eiga þokkalega framtíð, er það eitthvað sem þið verðið að gera sjálf. 0:04:09.598,0:04:13.598 Það mun enginn gera það fyrir ykkur og þess er ekki að vænta frá öðrum, 0:04:13.598,0:04:20.731 eða farsæld sé sjálfkrafa afleiðing þess [br]stjórnmála- eða hagkerfis sem við búum við. 0:04:21.653,0:04:23.765 Þið hafið heilmikið af auðlindum og gæðum til þess. 0:04:23.765,0:04:28.949 Staða landsins verður mikilvægari með tímanum. 0:04:28.979,0:04:35.027 Og vonandi getið þið notað aðstæðurnar til hagsbóta fyrir þjóðina. 0:04:37.057,0:04:39.302 Ég er hér fyrst og fremst til að læra. 0:04:39.409,0:04:49.576 Og mér finnst athyglisvert hvernig unnið er með orku og matvælaöryggi. 0:04:50.607,0:04:57.999 Engu að síður standið þið frammi fyrir vali[br]milli skammtímagróða eða 0:04:57.999,0:05:02.889 uppbyggingar sem skilar stöðugu samfélgi sem getur brugðist við áföllum til lengri tíma. 0:05:03.197,0:05:08.216 Þeir sem vilja græða í dag [br]þrýsta alltaf á um skammtímalausnir. 0:05:08.894,0:05:12.192 Þeir sem hinsvegar vilja sjálfir og að börn þeirra 0:05:12.192,0:05:16.224 og afkomendur geti lifað sómasamlegu lífi áfram í landinu um ókomna tíð, 0:05:16.332,0:05:22.175 leita þeirra leiða sem eru öruggari betur til þess fallnar að viðhalda stöðugleika. 0:05:22.498,0:05:24.995 Og það er von mín að þið veljið þá leið.