Jæja byrjaður í nýja hlutverkinu
allir forstöðumennirnir búnir að mæta
Þeir vilja fá einhver svör við óskum sínum
Hvað fá þeir gert?
En bæjarstjórnin getur ekkert gert!
Við verðum að sitja fast á okkar
Það eru allir að verða brjálaðir út í okkur
Vissuð þið það
Þvílíkt rugl
Alltaf sama sagan, allir vilja eitthvað
Við reynum að fara alls konar leiðir til að bulla okkur út úr þessu
Neitum að tala við starfsmenn grunnskólans um þeirra kröfur
Og leikskólinn, hann hættir aldrei, við viljum við viljum við viljum
En við látum bara eins og allt sé í lagi
og það besta er og það besta er
Að við eigum bara alls enga peninga og verðum því bara að
að láta eins og allt sé í lagi!
Við könnumst ekki við neinn leka eða of lítinn leikskóla
Við ættum að fá nóbelsverðlaun fyrir þessa frammistöðu okkar
Bæjarbúar verða vonandi búnir að gleyma þessu fyrir næstu kosningar
Við gerum bara eitthvað skemmtliegt fyrir þau - höldum árshátíð
sem dregur athyglina frá vandamálinu
við getum gefið öllum í glas
og lofað þeim öllu fögru til að allir verði happy
það vilja allir í glas
Happy og gleyminn
en svo tekur raunveruleikinn við - musterið vill fá loftræstikerfi
Svo er annað
svo er annað
Svo bara kvartar fólk yfir því að við fórum smávegiðs umfram áætlun með flottu þjónustumiðstöðina okkar
Við hefðum annars misst bankann - og allir orðið brjálaðir yfir því
En eru samt brjálaðir yfir eyðslunni
þetta er ótrúlegt
Já þetta er sko ótrúlegt
En við erum snillingar og reddum þessu
Fáum Arnarlax og fleiri fyrirtæki í bæinn
Er það gott fyrir Bolungarvík?
Æji ætli einhver hagsmunasamtök mótmæli ekki komu þeirra
En við tökum bara fagnandi á móti þeim
Fögnum komu þeirra með stæl og hlustum ekki á mótmælisbull
Þetta er nú meira bullið allt saman
Í HVAÐ ER ÉG EIGINLEGA KOMINN HÉRNA?
Ég vissi bara ekkert hvað beið mín þegar ég tók við stöðunni
Æji það verður bara gaman að takast á við þetta!